Persónuverndarstefna
Persónuverndarstefna
Persónuupplýsingarnar
Við notum persónuupplýsingar þínar ekki í neinum öðrum tilgangi en þeirra er aflað. Við áskiljum okkur rétt til að deila persónuupplýsingum þínum með þriðju aðilum sem koma að tæknilegu viðhaldi eða greiðsluþjónustu (slíkir aðilar kallast héðan í frá einu nafni „þriðju aðilar“) að því marki sem nauðsynlegt er svo við getum innt þjónustuna af hendi. Við tryggjum að slíkir þriðju aðilar viðhafi fullan trúnað. BF-útgáfa ábyrgist að nota þessar upplýsingar eingöngu í bókhaldslegum tilgangi og til að tryggja réttindi notenda. Notendur http://bokafelagid.is (en ekki BF-útgáfa) eiga sínar persónuupplýsingar og hafa einir aðgang að þeim ásamt starfsfólki BF-útgáfu. BF-útgáfa sér til þess að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga.
Tölfræðilegar samantektir
BF-útgáfa ehf. áskilur sér rétt til að útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir og aðrar afleiddar upplýsingar sem án alls vafa eru ekki persónugreinanlegar og nota sér þær í starfi, til dæmis fyrir ársskýrslu BF-útgáfu.
Vefhegðun
Þegar notendur heimsækja vefsvæðið http://bokafelagid.is, kann vefsvæðið http://bokafelagid.is að safna tæknilegum upplýsingum um notkun þeirra, t.d. um tegund vafra, hvaða vefsíður notendur heimsækja á http://bokafelagid.is, tímann sem notendur verja á vefnum o.s.frv. Þess konar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að bæta upplifun notenda af þjónustunni, t.d. með því að bæta hönnun þjónustunnar eða láta notendur vita af hugsanlegum tæknilegum vandamálum í búnaði þeirra.
Upplýsingar til þriðja aðila
BF-útgáfa mun ekki undir nokkrum kringumstæðum afhenda, selja eða leigja persónuupplýsingar notenda http://bokafelagid.is til þriðja aðila nema BF-útgáfu sé það skylt samkvæmt lögum eða samkvæmt beiðni notanda.
Bókhaldsgögn
Bókhaldsgögn eru geymd í samræmi við lög og reglur um færslu bókhalds og varðveislu þess. Að þeim tíma liðnum er gögnunum eytt, upplýsingum á skilagreinum er þó ekki eytt.
Takmörkun ábyrgðar
Að því marki sem gildandi lög heimila, ber BF-útgáfa enga skaðabótaábyrgð vegna atvika sem upp kunna að koma vegna þess hvernig þjónustan er notuð eða útveguð, nema ef hægt er að rekja slík atvik til vítaverðrar vanrækslu eða misferlis af ásetningi af hálfu BF-útgáfu. Félagið ber enga ábyrgð á töfum sem verða á þjónustunni eða því að þjónustan virki ekki sem skyldi vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure).
Lög og lögsaga
Þessi persónuverndarstefna fellur undir íslensk lög. Leysa skal úr ágreiningi sem kann að rísa eða í tengslum við persónuverndarstefnuna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ef ekki er hægt að leysa úr honum á annan hátt.
Breytingar
BF-útgáfa áskilur sér rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu Bókafélagsins.
Tengiliðaupplýsingar
Ef þú óskar eftir nánari upplýsingum varðandi persónuverndarstefnu BF-útgáfu skaltu hafa samband við okkur hér: Sími: 578 1900, Netfang: jonas@bokafelagid.is
Traust er eitt af einkunnarorðum BF-útgáfu og leggur mikla áherslu á að tryggja öryggi þeirra persónuupplýsinga sem notendur http://bokafelagid.is treysta BF-útgáfu fyrir.